L-theanín finnst aðallega í grænum og svörtum telaufum og einstaka lækningasveppum.
Theanín er talið hafa áhrif á viss taugaboðefni í heilanum, þar á meðal GABA framleiðslu, ásamt seratónín og dópamín, en þessi taugaboðefni hafa m.a. áhrif á geðheilsu, svefn, tilfinningar, skýrleika og árverkni, meltingu og fl. Theanín hefur líka áhrif á hormónið kortisol (nýrnahetturnar framleiða) sem hjálpar líkamanum til að takast á við streitu. Talið er að theanín verndi heilafrumur fyrir streitu og aldurstengdum skemmdum og er talið hafa góð áhrif á ADHD einkenni.
L-theanín er ekki lífsnauðsynleg amínósýra og líkaminn framleiðir hana ekki, hún er eingöngu notuð til heilsueflingar.




