Mercola L-Glycine

5.237 kr.

Amínó sýran l-glycine stuðlar að vexti og heilsu fruma og er nauðsynleg fyrir framleiðslu líkamans á glútaþíoni (glutathione), en glútaþíon er aðal andoxunarefni fyrir frumur líkamans sem þær framleiða til að verjast frumuskemmdum (oxun), og til varnar próteinum og DNA. Þessi amínósýra hjálpar líkamanum til að eldest vel þar sem hún hefur áhrif á vöðva, hjarta, heila, meltingu, blóðsykurs jafnvægi, æðakerfi og efnaskipti.

Lagerstaða: Á lager

- +

L-glycine er mjög mikilvæg amínósýra fyrir starfsemi líkamans en frekar lítið þekkt. Framleiðsla hennar í líkamanum á sér stað í ákveðnum efnaskiptum milli líffæra þar sem lifrin og nýrun gegna mikilvægu hlutverki. Nánar:

  • Hjálpar líkamanum að búa til glútaþíon.
  • Byggir upp og verndar kollagen; prótein sem byggir upp bein, liði, vöðva og vefi líkamans.
  • Styður við heilbrigði efnaskipta og blóðsykursjafnvægis.
  • Vinnur sem slakandi taugaboðefni í heilanum, styrkir framleiðslu á seratonín hormóni sem styður m.a. geðheilsu (vellíðan), svefn og minni.
  • Styður við afeitrunarferli líkamans.
Fullorðnir, 2 hylki á dag.
Vörukarfa