Við vitum að það er heill frumskógur af bætiefnum í boði hér á landi og út um allt á netinu eru alls konar fullyrðingar og auglýsingar um hinar og þessar heilsuvörur. Við vitum líka að þau eru eins misjöfn og þau eru mörg, og eru langt frá því að standa jafnfætis hvað gæði varðar. Þess vegna veljum við allar okkar heilsuvörur af kostgæfni til að tryggja að þær séu eins náttúrulegar, áhrifaríkar, heiðarlegar og umhverfisvænar og hugsast getur. Við viljum einungis hágæða heilsuvörur. Okkar markmið er að þegar þið kaupið af okkur vörur getið þið verið örugg um að fá það besta fyrir ykkur sjálf og fjölskylduna hvað varðar gæði, hreinleika og virkni.

Við reynum að vera dugleg að láta vita af nýjum vörum á samfélagsmiðlunum okkar og í gegnum fréttabréfin. Það er hægt að skrá sig á póstlistann á forsíðunni, allir sem skrá sig á póstlistann fá fréttir af öllum viðburðum, námskeiðum og nýjum og spennandi vörum á undan öllum öðrum, einnig fá vinir okkar á póstlistanum afsláttarkóða í hverjum mánuði sem þau geta notað bæði í verslun og vefverslun. Við erum á samfélagsmiðlunum Instagram, Facebook og TikTok og hvetjum öll til að fylgja okkur þar fyrir frekari tilkynningar og kynningar á vörunum okkar. Ef þú hefur áhuga á að fræðast um hágæða heilsuvörur eru miðlarnir okkar fyrir þig.

Afhverju Mamma veit best?

Margir hafa áhuga á nafninu okkar og það er svo sannarlega ekki komið úr lausu lofti. Nafnið vísar í þá trú okkar að Móðir jörð viti hvað er best fyrir börnin sín og að hjá henni getum við fundið þær lausnir sem við leitum að.Með það að leiðarljósi gerum við okkar besta til að virða og heiðra móðurina sem við deilum öll, Jörðina.

Sýna 1–9 af 1314 niðurstöður

Vörukarfa