Glútamín er mikið notað af íþróttafólki enda spilar það mikilvægan þátt í vöðvauppbyggingu. Það þykir flýta fyrir endurheimt og ýta undir vöðvastyrk.
Glútamín er afar mikilvægt fóður fyrir meltingarveginn en það nærir frumurnar sem mynda þarmaveggina og hjálpar til að halda þeim heilum og heilbrigðum svo upptaka næringar geti gengið eðlilega fyrir sig.
Líkaminn getur breytt L-Glútamíni í glutamic sýru. Glutamic sýra getur bæði nýst sem orkugjafi fyrir heilann auk þess sem hún getur umbreyst í GABA, mikilvægt taugaboðefni sem m.a. hefur róandi áhrif.




