Skilmálar

Almennt

Mammaveitbest.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d
vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða uppá
vörutegundir án fyrirvara. Áskilinn réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru

Allar vörur eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé
varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna áætlaðan
afhendingatíma vörunnar. Öllum vörum er dreift af Íslandspósti og gilda
afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspóst um afhendingu
vörunnar. Mammaveitbest.is ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann
að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá mammaveitbest.is
til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Sendingakostnaður

Sendingakostnaður er samkvæmt verðskrá Íslandspósts og Dropp hverju sinni.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Ekki er skilaréttur á vörum í netverslun www.mammaveitbest.is nema að um sannarlegan
galla á vöru sé um að ræða þá er leyfilegt að skipta vöru út, ef vara er ekki
til þá hefur kaupandi rétt á endurgreiðslu.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Greiðslumöguleikar

Í netverslun Mamma veit best er boðið uppá nokkrar
greiðsluleiðir. í boði er að greiða með öllum helstu greiðslukortum, PEI og
Netgíró. Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist
og pöntun verður send.

GREIÐSLUKORT
Mögulegt
er að greiða með pöntun með öllum helstu kreditkortum og fer greiðsla í gegnum
örugga greiðslugátt hjá Teya.

NETGÍRÓ
Netgíró
er kortalaus viðskipti á netinu. Til þess að geta nýtt sér þennan
greiðslumöguleika er skilyrði að viðskiptavinur sé með aðgang hjá Netgíró sem
hægt er að sækja um hér: www.netgiro.is Viðskiptavinur þarf þá
einungis að slá inn kennitölu og lykilorð í lok kaupferlisins. Greiðsluseðill
birtist í heimabanka viðskiptavina sem gefst kostur á að greiða reikninginn
innan 14 daga, vaxtalaust.

PEI
Pei er
kortalaus greiðsluleið þar sem þú borgar með að fá greiðsluseðil sendan í
heimabanka með 14 daga til að borga. Hægt er að fá auka 30 eða 60 vaxtalausa
daga til að borga, einnig er hægt að dreifa kaupunum. Ekki er nauðsynlegt að
vera forskráður hjá Pei ef verslað er fyrir undir 20.000 kr. Ef þú skráir þig
inn á www.pei.is sérð
þú þína heildarheimild hjá Pei.

Skattar og gjöld

Öll verð í netverslun eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um þær upplýsingar sem
kaupandi gefur í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar
þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans
skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavikur.

Mamma veit best ehf

Kt: 520110-0700,

Dalbrekka 30, 200 Kópavogur

VSK númer 103673

Vörukarfa