Skortur á tryptófani getur hugsanlega orsakað kvíða, þunglyndi, svefnvandamál, námstregðu, minnisleysi, lélega sjónræna skynjun, auknar skapsveiflur og skort á reiðistjórnun.
Líkaminn breytir tryptófani að hluta til í 5-HTP sem umbreytist síðan í taugaboðefnið serótónin sem sér um að koma taugaboðefnum til skila á milli taugafruma í heilanum, það finnst einnig víðar í líkamanum, t.d. í meltingunni, í blóðflögum og um allt taugakerfið. Líkaminn breytir tryptófani að hluta til í NAD (nikótínamíð adenín tvínúkleótíð) sem er talið gera fæðu/fæðubótarefni sem inniheldur þessa amínósýru að uppsprettu fyrir níasín (B-3) sem líkaminn þarfnast til að starfa eðlilega.





