Lysine er lífsnauðsynleg amínósýra sem líkaminn verður að fá úr fæðunni eða sem fæðubót.
Líkaminn getur unnið nokkrar aðrar amínósýrur úr L-lysine, m.a. L-carnitine sem kemur t.d. við sögu í fituefnaskiptum.
Lysine er nauðsynlegt til að líkaminn geti myndað kollagen og kemur þannig við sögu í uppbyggingu á beinum, liðum, húð o.fl.
Lysine kemur einnig við sögu í orkuvinnslu í líkamanum.
Lysine getur haft hamlandi áhrif á herpes vírusinn og hefur þess vegna reynst vel við frunsum.




