Ástand örveruflóru í meltingarvegi hefur áhrif á alla þætti heilsu okkar, t.d. virkni og næringarupptöku meltingarkerfisins, ónæmiskerfisins, gæði svefnsins, virkni huga, vitsmuna og skaplyndis svo eitthvað sé nefnt, allt þetta er undir áhrifum frá örverum, eða skorti á þeim, í þörmunum okkar.
Heilbrigði meltingarflórunnar ræðst af jafnvægi á milli vinveittra baktería og óvinveittra baktería í þörmunum. Þegar þetta jafnvægi raskast er innri varnarveggur þarmanna í hættu sem getur haft neikvæðar heilsufarsafleiðingar í för með sér.
Það er margt sem getur raskað eða eyðlagt þarmaflóruna og hér eru nokkur dæmi:
- Klór (t.d. í uppþvottavéla töflum) flúor, mikil neysla á sykri og einföldum kolvetnum, einhæft trefjasnautt matarræði, unnar matvörur og síendurtekin notkun fúkkalyfja og mikil lyfjanotkun.
- Skortur á lifandi örverum úr jarðvegi, dæmi um lifandi örverur: loða við grænmeti beint úr garðinum og ávexti beint að trjánum. Complete Afterbiotics innihleldur m.a. lifandi örverur (SBOs) úr heilbrigðum jarðvegi. SBO góðgerlar eru unnir þannig að þeir lifa af ferðalagið í meltingarveginum alveg niður í ristil.
- Streita getur hindrað framleiðslu á nauðsynlegu ensímum og orsakað lélega upptöku næringarefna.




