Própólis er kvoða sem hunangsflugur safna úr brumi og safa trjáa, og úr öðrum plöntum, en þær nota kvoðuna til að styrkja býflugnabúið. Própólis hefur verið notað um aldir til heilsubótar, m.a. til að styrkja ónæmiskerfið, það inniheldur yfir 300 efnasambönd, þar á meðal flavonoíða og pólýfenól sem hjálpa til við að draga úr oxunarálagi í frumum.
Time Health propolis er grænt býflugna própólis sem inniheldur einstaka fenólsýru: Artepillin C sem er talin hafa jákvæð áhrif ónæmiskerfið og styðja við vitræna heilsu.
Yfir 90% af öllu própólisi í heiminum kemur frá Kína þar sem það getur verið úsett fyrir mikilli mengun og notkun eiturefna. Lífræna própólisinu frá Time Health er safnað af traustum býflugnaræktendum í Brasilíu og er vottað lífrænt af Soil Association. Staðlar fyrir lífrænar vörur tryggja að þær séu betri fyrir fólk, dýr og jörðina. Varan er framleidd í Bretlandi samkvæmt GMP gæðatryggingu og inniheldur engin fylliefni, bindiefni eða önnur óæskileg efni.






