Solspring

Dr. Mercola framleiðir hágæða demeter vottaða matvörulínu undir nafninu Solspring og bætiefni undir Mercoala nafninu.
Demeter vottun er meira en bara hefðbundin lífræn vottun. Demeter vottun krefst heildrænnar nálgunar þar sem allt vistkerfi jarðar er virt. Demeter byggir upp og endurnýjar jarðveginn til heilbrigðis með lífaflfræðilegum (biodynamic) aðferðum.
Notaðar eru viðeigandi örverur og efnablöndur úr jurtaríkinu (lífaflrænar efnablöndur) til að örva blöndun lífræns úrgangs sem áburðar og eykur næringargildi og heilbrigði jarðvegsins.
Demeter bændur skila í raun meiru í jarðveginn en þeir fjarlægja í framleiðsluferlinu og þegar við kaupum demeter ræktaða matvöru styrkjum við ræktendur víða um veröld sem menga ekki og sem standa vörð um heilbrigði jarðar og mannkyns með ræktun sinni.
Einstök gæði eru í fyrirrúmi í Solspring vörunum t.d. kemur ólífuolían frá meira en 100 ára gömlum ólífutrjám í Kalamati héraði í Grikklandi og sósur sem innihalda tómata koma frá 40 ára gömlum ræktuarbýum í Moderna á Ítalíu.

Sýna 1–12 af 14 niðurstöður

Vörukarfa