Meira um sinnepsolíu:
- Sinnepsolía er þekkt í Ayurveda fræðunum fyrir vermandi eiginleika sína og getu til að róa auma vöðva, bæta blóðrásina og veita húðinni djúpan raka. Hins vegar verpur að nota hana rétt:
- Lykilleiðbeiningar um notkun: Hrein sinnepsolía getur valdið húðertingu eða útbrotum hjá viðkvæmum einstaklingum. Það þarf alltaf að þinna hana, t.d. með sætri möndlu- eða kókosolíu (1:1 hlutfall virkar vel).
- Nudd með sinnepsolíu blöndu getur verið áhrifaríkt fyrir þau sem þjást af bólgum og liðverkjum þar sem olían er talin hafa bólgueyðandi og vermandi eiginleika.
- Staðbundin notkun sinnepsolíu blöndu getur hugsanlega haft róandi áhrif þar sem olían fer inn í húðina, gæti gagnast þeim sem eru með með liðagigt og liðverki þar sem það léttir hugsanlega á óþægindum og bætir liðleika.
- Sinnepsolían er talin hafa sótthreinsandi eiginleika þegar hún er notuð útvortis, hún er talin flýta fyrir gróanda í sárum, en það þarf að blanda hana og varast að setja hana á opin sár.



