ST Walnut Oil 100ml

3.986 kr.

Valnetuolía er góð út á salöt, steikt grænmeti, pasta og fleira. Valhnetuolía er ekki aðeins notuð í matargerð heldur þykir hún góður kostur fyrir húð og hár. Valhnetuolía er mjög rík af omega-3 fitusýrum og andoxunarefnum, einnig inniheldur hún melantonin. Olíuna má nota bæði innvortis og útvortis, hún gefur húðinni raka og næringu.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: st-wal Flokkar: , , ,

Eiginleikar valhnetuolíu:

  • Valhnetuolía er talin af mörgum frábær vörn gegn hrukkum, olían hefur feita áferð, en regluleg notkun hennar getur í raun hjálpað til við að grynnka á fínum línum og hrukkum.
  • Hún hefur reynst vel til að meðhöndla sóríasis, það má bæði bera hana beint á húðina eða setja út í baðið.
  • Olían er mjög rík af andoxunarefnum, hún er einstaklega góð fyrir húðina

Hér eru kostir valhnetuolíu fyrir hárið:

  • Engum líkar að sjá óteljandi hár falla í hvert skipti sem við þvoum hárið eða greiðum okkur. Hárlos getur verið stressandi, valhnetuolía hefur hjálpað fólki sem vörn gegn hárlosi með hjálp Omega-3 fitusýra.
  • Valhnetuolía getur einnig verið frábær gegn flösu. Hún hjálpar til við að halda hársverðinum hreinum með því að fjarlægja óhreinindi, best er að nudda henni reglulega í hársvörðinn, olían kemur í veg fyrir að hársvörðurinn flagni og þorni.
  • Valhnetuolía stuðlar að hárvexti þar sem hún er rík af kalíum, kalíum hjálpar til við endurnýjun frumna og flýtir því fyrir hárvexti.

 

 

 

 

Innihaldsefni: Kaldpressuð extra virgin valhnetuolía. Engin rotvarnarefni, litarefni, ilmefni eða önnur aukefni.
  • Valhnetuolían er notuð í matargerð, t.d. út á salat, grænmetisrétti og pasta og fleira, við steiknigu getur bragðið orðið beiskt.
  • Frábær olía á húð og í hár.
  • Einnig má taka valhnetuolíuna inn, 7-15 ml (1/2 - 1 mtsk).
Vörukarfa