Hér eru áhugaverðar staðreynadir um olíuna:
- Olíuna er hægt að nota útvortis fyrir húð og hár, hún er mýkjandi, rakagefandi og bólgueyðandi og er talin góð við húðvandamálum eins og bólum, sóríasis og exemi.
- Olían er rík af omega 3 fitusýrum, hún er lík hörfræolíu en mun stöðugri því hún inniheldur e vítamín sem kemur í veg fyrir að hún þráni fljótt.
- Olían hefur eiginleika sem gerir hana að góðri burðarolíu fyrir aðrar olíur, hún hefur þægilegan hnetu ilm, hún fer djúpt inní húðina sem gerir hana að góðri nuddolíu.
- Olían er mjög hitaþolin og er góð til matargerðar (263° celsíus). Hægt er að nota hana í staðinn fyrir ólívu olíu á salat.
- Oían er nærandi fyrir hár og hársvörð, er góð við flösu, hægt er að hita hana og nudda hársvörðinn.
- Olíuna er hægt að bera á slitgitarsvæði útvortis.
- Tekin inn er olían talin góð fyrir heilann, taugakerfið og augu. EPA og DHA og alfa linoelic fitusýrur eru taldar vernda heilann gegn hrörnun.




