Jörth Nerv

13.900 kr.

Nerv er kraftmikið bætiefni sem veitir jafnvægi og ró með blöndu af gerjaðri broddmjólk, tríbútírat (e. tributyrin), góðgerlum, þíamíni og bíótíni og sem vinna saman til að styðja við taugakerfið. Hvort sem þú ert að leita að meiri fókus eða minni streitu þá hjálpar Nerv þér að viðhalda góðri orku og einbeitingu.

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: 031266 Flokkar: , , , ,

Nerv 1.2 er háþróað bætiefni framleitt úr gerjaðri íslenskri broddmjólk, örhjúpuðu tríbútýrati (e. tributyrate), sérvöldum góðgerlum ásamt B-vítamínum sem styðja við og næra taugakerfið og efla þannig andlega vellíðan.

Ertu undir miklu álagi eða finnur þú fyrir streitu og/eða þreytu? Nerv er háþróað bætiefni hannað til að styðja við taugakerfið og bæta andlega líðan. Það er framleitt úr gerjaðri íslenskri broddmjólk, örhjúpuðu tríbútýrati, bífídóbakteríum og nauðsynlegum B-vítamínum sem vinna saman að því að efla starfsemi taugakerfis og andlega líðan.

Nerv inniheldur einstaka blöndu af lífvirkum efnum sem hjálpa þér að styrkja taugakerfið á náttúrulegan hátt. Gerjaða broddmjólkin veitir ónæmisefland og græðandi eiginleika fyrir meltingarveginn og míkróhjúpuð smjörsýra styður við heilbrigði þarma og samskipti þarma og heila (e. gut-brain axis). Bífídóbakteríur stuðla að heilbrigðri þarmaflóru, en B-vítamínin eru nauðsynleg fyrir orku- og virkni taugakerfisins.

  • Styður við taugakerfið: Inniheldur nauðsynleg B-vítamín sem bæta taugavirkni og orku
  • Bætir samskipti þarma og heila: Míkróhjúpuð smjörsýra stuðlar að heilbrigðu taugakerfi með því að bæta heilbrigði meltingarvegar
  • Græðandi áhrif: Gerjuð íslensk broddmjólk eflir tauga- og ónæmiskerfi og stuðlar að betri meltingu og heilbrigði þarmanna
  • Stuðlar að andlegri vellíðan: Sérvalin blanda bifidóbaktería ásamt nauðsynlegum næringarefnum bæta andlega líðan
  • Náttúruleg hráefni: Framleitt úr hágæða náttúrulegum hráefnum án allra aukaefna.

Rannsóknir á hráefni, þ.e. broddmjólk hafa verið framkvæmdar á MIBRC rannsóknarsetri við MassGeneral Hospital, Harvard Medical School.

Klínísk íhlutunarrannsókn fer nú fram á einstaklingum á aldrinum 50-70 ára þar sem þátttakendur taka inn gerjaða broddmjólk eða fæðubótarefnið Abdom. Þar eru áhrif efnanna á þarmaflóru, gegndræpi þarma, bólguþætti og fleiri heilsufarsþætti skoðuð. Rannsóknin er hluti af SYMBIOSIS öndvegisrannsókn við Háskóla Íslands.

Gerjuð íslensk broddmjólk
  • Styður við þarma-heila tengsl og hefur róandi áhrif á taugakerfið.
Örhjúpað tríbútýrin
  • Hjálpar til við að viðhalda heilbrigðum þarmafrumum og þarmaflóru.
Bífídóbakteríubanda
  • Bifidobacterium bifidum
    • Styðja við heilbrigða meltingu og þarmaflóru.
  • Bifidobacterium longum
    • Hefur bólgueyðandi eiginleika og eykur þarmaheilbrigði.
  • Bifidobacterium animalis
    • Styður við þarmaflóru og meltingu.
Thíamín hýdróklóríð (B1-vítamín)
  • Nauðsynlegt fyrir orku- og taugaboðefnaframleiðslu.
Bíótín (B7-vítamín)
  • Stuðlar að heilbrigðu taugakerfi og efnaskiptum.
Til að fá sem mest út úr Nerv skaltu taka það daglega, helst með máltíð og vatni, og taka það á morgnana eða fyrri hluta dags fyrir orku og fókus. Með reglulegri notkun muntu hámarka áhrifin á taugakerfið, fókus og andlega vellíðan. Dagleg notkun
  • Taktu Nerv daglega til að tryggja stöðuga næringu fyrir taugakerfið og andlega vellíðan. Bestu áhrifin koma fram með reglulegri notkun.
Taktu inn með mat
  • Taktu bætiefnið með mat til að auðvelda upptöku næringarefnanna og forðast óþægindi í maga. Það má einnig taka Nerv á fastandi maga en getur upptaka verið betri með mat.
Taktu inn fyrrihluta dags
  • Taktu Nerv á morgnana eða fyrri hluta dags. Nerv inniheldur þíamín (B1) og bíótín (B7) sem hjálpa til við orku og efnaskipti, sem getur hjálpað þér að viðhalda orku og fókus yfir daginn. Taugastyrkjandi áhrif hjálpa einnig við að draga úr streitu og bæta einbeitingu.
Drekktu vatn með
  • Drekktu nóg af vatni með bætiefninu til að tryggja að það frásogist vel og það stuðlar einnig að betri virkni.
 
Vörukarfa