Mercola meltingargerlar konur 1mán

7.609 kr.

Góðgerlar Dr. Mercola fyrir konur innihalda 7 helstu lactobacillus tegundirnar sem allra jafna finnast í heilbrigðum leggöngum. Þar að auki inniheldur varan 3 algengar tegundir af bifidobakteríum sem vísindamenn telja að hafi svipuð heilnæm og verndandi áhrif og lactobacillus gerlar.

Lagerstaða: Á lager

- +

 

Vísindamenn keppast við að birta rannsóknir um gagnsemi góðgerla fyrir meltinguna og taugarnar, en rannsóknir leiða einnig í ljós að gagnlegt er að hafa heilbrigða og fjölbreytta gerlaflóru í leggöngunum.

Leggöng kvenna búa yfir sínu eigin lífkerfi; fjölbreyttu safni baktería, eða gerla. Þar þrífast, undir heilbrigðum kringumstæðum, gagnlegar bakteríutegundir í góðu innbyrðis jafnvægi, en röskun á þessu jafnvægi, eða skortur á góðu tegundunum, getur skapað vandræði og ofvöxt óæskilegra baktería eða sveppa.

Lactobacillus gerlar eru tegund af gagnlegum bakteríum sem finna má hjá heilbrigðum einstaklingum í meltingarvegi og leggöngum. Fleiri en 20 tegundir lactobacillus fyrirfinnast í leggöngum í heilbrigðu ástandi.

Fjöldi rannsókna sýna fram á að inntaka um munn á þessum tilteknu góðgerlum getur stuðlað að:

  • Auknum fjölda lactobacillus gerlategunda eftir 60 daga, meiri fjölda en hjá samanburðarhóp sem tók inn lyfleysu.
  • Minna af sveppasýkingum og óæskilegum bakteríum
  • Nýjum nýlendum æskilegra góðgerla í leggöngum og endaþarmi.
  • Kjörnu sýrustigi í leggöngum sem stuðlar að myndun æskilegrar gerlaflóru.
  • Betri alhiða heilsu leggangaflórunnar.

Vísindamenn hafa komist að því að bifidobakteríur og lactobacillus gerlar styðja vel við alhliða heilsu kvenna í gegnum bætta meltingu, enda er hún oft talin grunnur allrar heilsu.

Góðgerlarnir henta konum á öllum aldri.

 

  Ráðlögð notkun: Fullorðinsskammtur 1 hylki á dag, helst að morgni. 
Vörukarfa