Sinkskortur er útbreiddur og áhyggjuefni fyrir fólk víða um veröld. Næstum 1 af hverjum 3 eru líkeg til að þjást af skorti. Einkenni sinkskorts líkjast oft öðrum algengum kvillum, því getur verið erfitt að greina hann og auðvelt að missa af honum þegar heilsufar er metið.
Jafnvel þegar fólk fær nóg af sinki í mataræði sínu, geta önnur atriði dregið úr getu þess til að vinna steinefnið og taka það upp. Atriði á borð við streitu, meðgöngu, grænmetisfæði eð mataræði sem inniheldur mikið af korni, baunum, fræjum og hnetum. Að vera 60 ára eða eldri eykur einnig líkur á því að skorta sink.
Sink gegnir mikilvægu hlutverki í virkni ónæmiskerfisins og heilbrigðri frumuendurnýjun og hjálpar til við að halda bólgum niðri ásamt mörgum öðrum hlutverkum




