ST Milk thistle oil cold pressed 100ml

4.355 kr.

Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er hágæða kaldpressuð olía frá Síberíu,  unnin er úr mjólkurþistli. Olían er hjálpleg til að losa líkamann við sindurefni (e. free radicals), eiturefni og þungmálma. Hún er notuð til að auka getu lifrarinnar til endurnýjunar og endurheimtar og auka getu hennar til að vinna úr erfiðum efnum, ásamt því að hvetja lifrina til gallframleiðslu sem hjálpar til við að melta fitu betur.

Ekki til á lager

Vörunúmer: st mto -01 Flokkar: , , , ,

Formúla styrks og fegurðar

Mjólkurþistill er einn af demöntunum í geislandi kórónu Síberíu og hann er einstaklega heilandi í formi kaldpressaðrar olíu. Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er fyrstu pressun olía frá Altai fjöllunum.

Mjólkurþistill hefur verið þekktur sem lækningajurt langt aftur í tímann. Forn Grikkir, Arabar á miðöldum, heilarar og grasalæknar hinna ýmissa þjóða og ættbálka notuðu mjólkurþistilinn öld eftir öld; þurrkaðann, soðinn, malaðann, og búin voru til alls konar brugg og te úr honum sem hjálpuðu fólki að ná aftur styrk og að styrkja varnirnar gegn sjúkdómum.

Hægt er að nota svo gott sem alla jurtina (blóm, blöð, fræ og rót) til lækninga en mjólkurþistilsolían er einstaklega virk og gjöful. Hún er ljós græn/gul á litinn og mild á bragðið. Hún er fengin með því að pressa fræ mjólkurþistilsins. Mjólkurþistilsolían hefur jákvæð áhrif á allan líkamann, sérstaklega lifrina, enda er heilnæmi mjólkurþistilsins fyrir lifrina vel þekkt.

Sagan segir að heilög María sjálf hafi sýnt veikum manni Mjólkurþistilinn í draumi og sagt honum frá undursamlegum lækningaeiginleikum þessa oddhvössu jurtar sem hann sá á hverjum degi á göngu sinni til kirkju þar sem hann bað fyrir heilun og lækningu.Mjólkurþistillinn er í hávegum hafður í Síberíu. Víða sjást breiður af fjólubláum mjólkurþistilsblómum sveiflast í ferskra andvaranum. Stórkostlegar formúlur styrktar og fegurðar, jöfnur æsku og heilsu, eru skrifaðar af hreinu síberísku náttúrunni inn í mjólkurþistilsolíuna.

Mannslíkaminn verður stöðugt fyrir skaðlegum áhrifum útfrá mat, eiturefnum, alkahóli og ýmsum öðrum þáttum í umhverfinu. Þetta allt hefur áhrif á náttúrulega filterinn eða síuna okkar, lifrina. Fólk hefur notað mjólkurþistil frá aldaöðli til að styðja þetta mikilvæga líffæri og hjálpa því að vinna úr vandamálum og skaðlegum efnasamböndum. Mjólkurþistilsolían hefur verið þekkt fyrir að virka undravel til að styðja við lifrina, heilsu hennar og starfssemi. Plantan var notuð á tímum forn Egypta og Grikkja og mjólkurþistillinn var fyrst nefndur í fræðiritum frægra lækna og fræðamanna á borð við Galenus og Díóskorídes.

Mjólkurþistilsolían frá Siberian Treasure er búin til úr mjólkurþistli sem vex í suðurhluta Vestur Síberíu, í hjarta meginlands Evrópu og Asíu. Lykilvirka efnið í mjólkurþistli kallast silymarin og er það öflugt andoxunarefni. Mjólkurþistilsolían inniheldur yfir 350 gagnleg steinefni, vítamín og snefilefni á borð við zink, kopar, joð, króm, kalk, magnesíum, járn, A, B, E, K, D, omega 3 og góðar fitusýrur.

Kostir Mjólkurþistilsolíu

Fræ, blóm, rætur og stilkar mjólkurþistils eru notuð við framleiðslu ýmissa lyfja og bætiefna og í te og tinktúrur, en mjólkurþistilsolían er talin eitt gagnlegasta formið til að taka inn mjólkurþistil.

Mjólkurþistilsolían býr yfir getu til að örva framleiðslu glútaþíons (e. glutathione) í líkamanum og koma jafnvægi á glútaþíon gildin í líkamanum. Glútaþíón er stutt keðja þriggja amínósýra sem hjálpa til við að losa sindurefni (e. free radicals), eiturefni og þungmálma úr líkamanum. Glutaþíon er áhrifaríkt meðal við efnaeitrun og geislamengun.

Mjólkurþistils olía inniheldur líka flavanólignana sem eru lífvirk náttúruleg efnasambönd (silidíanín, silicristín og silybin) – efnasambönd sem hafa bein áhrif á getu lifrarinnar til endurnýjunar og endurheimtar og eykur mótstöðu lifrarinnar þegar hún er að vinna úr erfiðum efnum. Þessi efnasambönd hvetja lifrina til að framleiða og seyta galli sem brýtur niður fitu í meltingunni.

Einstök samsetning mjólkurþistilsolíu gerir það að verkum að gagnsemi hennar fyrir lifrina undraverð. Alltaf er best að vera í samráði við lækni eða hjúkrunarfræðing, fá rannsóknir og eftirfylgni og vera í samtali um inntöku á bætiefnum og mögulegum víxlverkunum við lyf og ræða skammtastærðir í inntöku á bætiefnum eins og mjólkurþistilsolíu.

 

 

Innihaldsefni: Síberísk mjólkurþistilolía,  fyrsta kaldpressun. Engin rotvarnarefni, litarefni, bragðefni eða önnur aukaefni.
Skammtar: Takið 3 til 5 ml (um það bil 1 til 2 teskeiðar) daglega. Almennt er mælt með að byrja með minni skammti (um það bil 1 teskeið) um það bil 20 mínútum fyrir máltíð, með vatni.
Vörukarfa