Moringa olefeira hefur verið mikilsmetin hefðbundin lækningajurt í gegnum aldirnar á Indlandi en hefur nýlega verið uppgötvuð í vestrænni matarmenningu. Gerðar hafa verið yfir 1,300 rannsóknir á jurtinni og greinar og skýrslur verið birtar sem leggja áherslu á nærandi og heilsubætandi eiginleika hennar.
Moringa er ekki bara undrafæða sem er hlaðin vítamínum, steinefnum, amínósýrum og andoxunarefnum, heldur er hún líka próteinríkasta planta sem vitað er um samkvæmt rannsóknum.
Þegar moringa er borin saman við aðra fæðu, þá getur þurrkað moringa innihaldið:
- 30 sinnum meira járn en spínat.
- 15 sinnum meira pótassíum en bananar.
- 12 sinnum meira C vitamin en appelsínur.
- 9 sinnum meira protein en jógúrt.
- 6 sinnum fleiri amínósýrur en hvítlaukur.
- 6 sinnum meira sínk en appelsínur.
- 3 sinnum meira A vítamín en gulrætur.
Dr.Mercola moringa er ræktað samkvæmt æðsta stuðli lífrænnar ræktunar, Demeter sem er upprunnin úr heimspeki Rudolfs Steiners um heildræna lífræna ræktun útfrá siðferðilegu og vistfræðilegu sjónarmiði.
Til að auka upptöku næringarefnanna þá er varan gerjuð.





