ARTISJÓKUR (Cynara scolymus)
Styður við starfsemi lifrar, galls, meltingu og efnaskipta. Artisjókur innihalda andoxunarefni sem vernda frumur gegn oxunarálagi og styðja við afeitrun, Artitsjókur eru náttúrulega ríkar af inúlíni, en það eru trefjum sem næra gagnlegar þarmabakteríur og styðja við jafnvægi meltingarinnar. Rannsóknir benda til þess að artisjókur geti einnig hjálpað til við að viðhalda heilbrigðri blóðfitu og blóðsykursgildi.
FÍFILL (Taraxacum officinale)
Fífill er notaður sem hreinsandi jurt, hann styður bæði við lifrar- og nýrnastarfsemi. Hann stuðlar að vökvajafnvægi, örvar gallflæði og hjálpar til við að létta á einstaka meltingar óþægindum eins og uppþembu og þyngslum eftir máltíðir. Nýjar vísindarannsóknir benda einnig til þess að fíflarótarþykkni geti stutt við heilbrigða frumustarfsemi.
TÚRMERÍK Curcuma longa, 95% curcumin)
Túrmerik og virka efni þess, curcumin (curcuminoids) veitir náttúrulega andoxunarvörn og hefur lengi verið talið styðja við liði, meltingu og ónæmiskerfi. Curcumin er bólgueyðandi og styður við ferli í lifur sem hjálpar líkamanum að meðhöndla eiturefni betur.
MJÓLKURÞISTILL (Silybum marianum)
Mjólkurþistill er vel þekktur fyrir virka efnið silymarin sem hjálpar til við að endurnýja og vernda lifrarfrumur gegn eiturefnum og oxunarálagi. Mjólkurþistill á sér langa sögu af hefðbundinni notkun til að styðja við lifur og meltingu.
Fasi I (virkjun): Silymarin stýrir og hægir á ofvirkum fyrsta stigs ensímum (cýtókróm P450) og kemur í veg fyrir að eitruð efni safnist upp of hratt. Rannsóknir benda til þess að mjólkurþistill geti hugsanlega hjálpað til við að styðja einstaklinga með fitulifur.
KÓLÍN
Nauðsynlegt næringarefni fyrir eðlilega lifrarstarfsemi og fituefnaskipti. Kólín styður við flutning fitu úr lifrinni, hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu fitujafnvægi og gegnir mikilvægu hlutverki í afeitrun og efnaskiptum. Kólín er eitt af lykilnæringarefnunum sem þarf til metýleringar og styður við almenna frumuheilsu og orkujafnvægi.


Þistilhjörtu (Cynara scolymus): 440mg, Túnfífill (Taraxacum officinale): 300mg, maríuþistill (Silybum marianum): 60 mg, grænmetishylki, engin rotvarnarefni, óerfðabreytt, glútenlaust, vegan. 

