B12 vítamín er lífsnauðsynlegt næringarefni sem líkaminn þarf til margra starfa. Methylcobalamin er virkt og auðnýtanlegt kóensímform af B12 vítamíni sem best er að láta leysast upp undir tungunni svo það virki sem best.
Nokkur dæmi um hvers vegana B12 er mikilvægt.
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi- og skiptingu frumna
- Spilar mikilvægt hlutverk í virkni heila og taugakerfis
- Nauðsynlegt fyrir eðlilega blóðmyndun
B12 skortur er nokkuð algengur og geta einkenni hans t.d. komið fram sem þreyta og slen, þunglyndi og blóðleysi. Skortur er sérstaklega algengur hjá eldra fólki en með aldrinum getur upptaka B12 vítamíns minnkað svo nauðsynlegt getur reynst að taka bætiefni.
Grænmetisætur þurfa líka að passa vel upp á B12 stöðuna þar sem vítamínið finnst nánast eingöngu í dýraafurðum. Gott er að biðja lækni um að mæla stöðuna reglulega til að koma í veg fyrir skort.
Hentar grænmetisætum
Laust við:
- Ger
- Mjólkurvörur
- Egg
- Glúten
- Maís
- Soja
- Sykur
- Sterkju
- Salt
- Rotvarnarefni
- Gervi- bragð, litar og ilmefni





