Í lífaflsrænni (biodynamic) ræktun er jarðvegurinn nærður með sérstakri líftækni sem skilar næringunni til baka með sérstökum örverum eftir hverja uppskeru, það sem er tekið úr jarðveginum við ræktun er gefið til baka. Allt ferlið í ræktununni tilheyrir þessari hugsjón, ræktendurnir ástunda heildræna uppbyggilega ræktun sem eflir heilbrigði jarðvegsins, uppskeru og búpenings. Í lífaflsræktun er eingöngu stunduð sjálfbærni, sjálfbærni í matvælageiranum er skilgreind þannig að framleiðslan stuðli að heilbrigði jarðarbúa, sanngjörnum viðskiptum og heilbrigði þess umhverfis sem við lifum í, nú og til framtíðar. Lögð er áhersla á menningarleg gildi og hefðir, sanngjörn viðskipti, frið og öryggi.


