Hugmyndafræði Primavera byggir á heildrænni nálgun á heilsu og fegurð, fyrirtækið hefur 35 ára sérfræðiþekkingu og reynslu af plöntum, ilmmeðferðum og lífrænni húðumhirðu. Primavera framleiðir eingöngu hreinar og lífrænar náttúrlegar vörur. Primavera stundar eingöngu sanngjarna viðskiptahætti, með virðingu fyrir fólki og jörðinni okkar að leiðarljósi.
Sale!
Primavera Aroma Sauna Source of Energy
4.982 kr.
Ilmolíublandan hefur örvandi og orkugefandi áhrif á öndunarfæri og ilmur af sítrónugrasi, sedrusviði og fjallafuru hressir líkama, sál og skilningarvit.
Lagerstaða: Á lager
Innihaldsefni: Lífrænt alkóhól, vatn, lífræn sedrusolía, lífræn sítrónugrasolía, lífræn appelsínuolía, amerísk sedrusviðarolía, lífræn fjallafuruolía, lífræn piparmyntuolía, lífræn lavenderolía, lífræn grænmyntuolía, og fleira. Lífræn ræktun.
Blandið 10-25 ml af ilmkjarnaolíu þykkninu saman við 1 lítra af vatni og hellið 1-2 ausum af blöndunni á heitan gufubaðsstein.





