SDI Sólarvörn 30SPF stifti 45gr

3.296 kr.

Sol de Ibiza Sólarvörn SPF 30 stifti fyrir andlit og líkama, vatnslaus sólarvörn í föstu formi. Hentar öllum húðgerðum og er stórsniðugt þegar bera þarf á staði sem eru sérstaklega berskjaldaðir fyrir sólinni eins og nef, enni, eyru, aftan á háls og víðar.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: sdi-30spfs Flokkar: , ,

Í kreminu er non nanó sink oxide. Non nanó stendur fyrir aðsink agnirnar eru stærri en 100nm og komast því ekki inn í húðina. Sinkið er því öruggt fyrir húðina þína og jörðina. Það veitir vörn gegn UVA og UVB geislum, bláu ljósi og mengun

100% niðurbrjótanlegar umbúðir úr pappa
Hentar fyrir alla fjölskylduna; Börn og fullorðna
Hentar vel í daglega notkun, ekki bara sólardaga
Vegan og ekki prófað á dýrum.

Aðal innihaldsefni: Sæt möndluolía: Inniheldur E-vítamín og andoxunarefni sem gefa góðan raka djúpt í húðina, draga úr roða og ertingu og hafa verndandi áhrif á húðina. Sink oxíð: Náttúruleg vörn gegn UVA og UVB geislum, styður við endurnýjun húðar og hjálpar til við að meðhöndla brúna bletti og melasma (Húðsverting eða stórar brúnar skellur í andliti). Lífrænt kakósmjör: Eykur teygjanleika húðarinnar og gefur góða og djúpa næringu. Lífrænt Aloe vera:  Gefur góða næringu og andoxun í húðina, verndar, heilar og róar. Lífrænn morgunfrúar extrakt: Mýkir húðina og styður við raka og endurnýjun húðar. Lífrænn malva extrakt: Róar og dregur úr bólgu í húðinni, gefur góðan raka og stuðlar að mjúkri og geislandi húð. Innihald: Sæt möndluolía*, sink oxíð, cetyl alcohol, Kaprýl/kaprín þríglýseríð, candelilla vax (Euphorbia Cerifera cera), Carnauba vax* (Copernicia Cerifera Cera), kakósmjör*, Polyhydroxystearic Acid, sólblómaolía*, oryzanol, þurrkaður aloe vera safi*, extrakt úr morgunfrú*, extrakt úr læknastokksrós rót*, extrakt úr skógarstokkrós* (malva sylvestris), Polyglyceryl-3 Polyricinoleate, Isostearic Acid, lesitín, E-vítamín (tocopherol), Ascorbyl Palmitate, sítrónusýra. *úr lífrænni ræktun
Notkun: Ýttu stiftinu mjúklega upp frá botninum, haltu stiftinu við húðina til að mýkja, notaðu stiftið eins og penna og berðu vel á þig. Endurtaktu á amk. tveggja tíma fresti. Passaðu uppá húðina þína og jörðina í leiðinni. 100% pappahólkur sem er bæði niðurbrjótanlegur og endurvinnanlegur.
Vörukarfa