Ingling Kraftur Test Boosterinn 180hylki

15.990 kr.

KRAFTUR er blanda sem er búin til úr jurtum, sveppum og náttúrulegum efnum sem eru talin styðja við hormónakerfið hjá karlmönnum, blandan inniheldur einnig öll vítamín og steinefni sem eru nauðsynleg undirstaða.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 714056 Flokkar: ,

Kraftur inniheldur:

KSM-66 Ashwagandha (Withania somnifera):
Rannsóknir benda til að ashwagandha geti dregið úr kortisólmagni, aukið testósterón og bætt frjósemi karla. Hún hefur einnig sýnt áhrif á minni streitu, betri svefn og aukinn vöðvamassa við æfingar.

Himalayan Shilajit (40% fulvic acid):
Shilajit er steinefnarík blanda úr fjöllum Himalaya sem styður hvatberastarfsemi, bætir orkustig og frjósemi og seinkar öldrunarferlum. Rannsóknir sýna að hún getur aukið bæði heildar- og frítt testósterón.

Fenugreek (Trigonella foenum-graecum):
Fenugreek styður við aukið frítt testósterón og kynhvöt, ásamt því að hafa jákvæð áhrif á blóðsykur og bólgur. Notað af íþróttafólki til að styðja vöðvavöxt og endurheimt.

Maca (Lepidium meyenii):
Maca styður við undirstúku-heiladinguls-öxulinn og getur aukið jafnvægi, þol og andlega frammistöðu.

Cordyceps sinensis:
Cordyceps örvar ATP-framleiðslu sem bætir orku og þrek. Rannsóknir hafa einnig sýnt að hann getur haft áhrif á testósterónframleiðslu og eistnastarfsemi. Mjög vinsæll meðal íþróttamanna.

Íslenskt klóþang (Ascophyllum nodosum):
Ríkt af joði sem styður skjaldkirtilinn – sem er grunnstoð í hormónajafnvægi og efnaskiptum. Klóþang inniheldur einnig snefilefni sem styðja við endurheimt og almenna vellíðan.

Black pepper extract (95% piperine):
Piperine eykur upptöku á öðrum efnum, sérstaklega D3 og K2. Hefur einnig örvandi áhrif á efnaskipti og getur haft jákvæð áhrif á hormónajafnvægi og blóðrás.

Zinc glycinate:
Sink gegnir lykilhlutverki í testósterónframleiðslu og frjósemi. Skortur tengist lágum testósteróni og skertu ónæmi. Glycinate-formið tryggir góða upptöku og mild áhrif á meltingu.

Boron citrate:
Bór getur aukið frítt testósterón, lækkað estradíól og stutt beinheilsu. Einnig bætir það nýtingu D-vítamíns og magnesíums.

Selenium:
Selen styður testósterón- og sæðisframleiðslu og hefur andoxunarvirkni sem verndar frumur gegn oxunarálagi

Vítamín D3:
D-vítamín er forveri hormóna og tengist beint hærra testósterónmagni og bættri andlegri líðan. Algengur skortur á Íslandi gerir viðbót sérstaklega mikilvæga.

Vítamín K2 (menaquinone-4):
Í dýrarannsóknum hefur K2 aukið testósterónframleiðslu í eistum. Einnig styður það kalkjafnvægi og hjartaheilsu í samspili við D3.

Joð:
Nauðsynlegt fyrir skjaldkirtilinn sem stjórnar efnaskiptum og hefur áhrif á hormónajafnvægi, þar á meðal testósterónframleiðslu.

Vegan hylki.
Ráðlögð notkun: 6 hylki á dag að morgni. Mælt er með að taka vöruna í þrjá mánuði í senn og síðan hvíla hana í einn mánuð.
Vörukarfa