Rafvakar eru steinefni í líkamanum sem hafa rafhleðslu, einnig þekkt sem jónir. Rafvakar finnast í frumum, vefjum og líkamsvessum. Helstu kostir rafvaka (electrolytes):
- Vökvun líkamans: Rafvakar hjálpa líkamanum að halda réttu vökvajafnvægi.
- Vöðvastarfsemi: Steinefni eins og magnesíum og kalsíum eru nauðsynleg fyrir eðlilega vöðvasamdrætti og koma í veg fyrir krampa.
- Taugakerfið: Rafvakar eins og kalíum og natríum sjá um að flytja rafboð á milli frumna í taugakerfinu.
- Sýrustig líkamans: Rafvakar hjálpa til við að viðhalda réttu sýrustigi í blóði og öðrum líkamsvessum.
- Orka og frammistaða: Með því að hámarka vökvabúskapinn geta raflvakar bætt líkamlega frammistöðu og úthald.





