Nattokinase (NSK-SD™)
Nattokinase er ensím sem kemur við sögu í öllum kerfum líkamans. Ensímið er einangrað úr nattói sem er hefðbundin japönsk gerjuð fæða unnin úr sojabaunum, stundum einnig úr kjúklingabaunum. Eftir að búið er að einangra nattokinase úr sojabaunum með gerjun, inniheldur það ekki neitt soja.
- Samkvæmt rannsóknum er talið að Nattokinase geti komið í veg fyrir króníska æðasjúkdóma og verndað hjartað.
- Nattokinase getur hugsanlega dregið úr of háum blóðþrýstingi.
- Nattokinase getur hugsanlega komið í veg fyrir blóðtappamyndun.
- Nattokinase er talið styrkja meltingu og bæta efnaskipti.




