Grunnefnið í Le Pharm CBD, heilvirkri (full spectrum) húðolíu, er sótt með koldíoxíð pressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum og fleiri lífvirkum efnasamböndum ásamt kókosolíunni sem notast er við til íblöndunar myndast nokkurs konar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.
CBD olían er fáanleg í 10 ml. flösku með dreypara (pípettu) og fjórum mismunandi styrkleikum. Olían er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%.
Hún inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessari olíu, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).





