Til eru jurtir sem geta hjálpað líkamanum að aðlaga sig að streitu og halda stöðugleika, jafnvægi og samstillingu í líkamsferlum í streituvaldandi umhverfi og í streituvaldandi aðstæðum. Þessar jurtir eru kallaðar “adaptogen” jurtir á ensku og er Burnirótin ein þessara jurta. en hún er þekkt fyrir að efla orku og úthald og létta lund.
Burnirótin er mikið rannsökuð jurt og hafa rannnsóknir sýnt frammá að hún styrkir taugakerfið ásamt mörgum öðrum góðum eiginleikum og hefur hún verið notuð sem lækningajurt öldum saman.
Burnirótin:
- Eykur orku og úthald
- Léttir lundina
- Getur hjálpað við endurheimt eftir æfingar
- Getur hjálpað líkamanum að takast betur á við álag, bæði andlegt og líkamlegt
- Getur styrkt einbeitingu og minni
- Talin styrkja nýrnahetturnar





