LePharma 50% CBD Pasté

18.900 kr.

Grunnefnið í Le Pharm CBD, heilvirka (full spectrum) þykkninu, er sótt með koldíoxíð pressun til að draga alla kannabínóða iðnaðarhampsins úr plöntunni. Aðferðin er 100% náttúruleg og með henni verður útdrátturinn heilvirkur (full spectrum). Með öðrum kannabínóðum nokkurs konar „hópefli“ (e.entourage effect) sem hámarkar virknina sem ná má úr plöntunni.

CBD þykknið er fáanlegt í 5 ml. sprautu og í nokkrum mismunandi styrkleikum. þykknið er bæði lífræn og vegan og THC innihald er minna en 0.2%.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: leph007 Flokkar: , , ,

Verkferlar og geymsla.

CBD innihaldsefnið í Le Pharm þykkninu er unnið úr lífrænt ræktuðum iðnaðarhampi (Cannabis Sativa L). Kappkostað er að öll önnur innihaldsefni séu lífræn og unnin með vönduðum og vottuðum hætti. Framleiðandinn skartar m.a. GMP vottun (Good Manufacturing Practices). Ræktun iðnaðarhampsins er GACP (Good Agricultural and Collection Practices) vottuð og útdráttur CBD kannabínóðanna er gerður með koldíoxíð pressun án nokkurra aukaefna. Aðferðin er sú náttúrulegasta sem völ er á í CBD vinnslu. Framleiðslan er unnin undir stöðugu gæðaeftirliti ISO/IEC 17025 staðals.

Þykknið skal nota innan sex mánaða eftir opnun. Best er að geyma þykknið á köldum dimmum stað. Geymist þar sem börn ná ekki til.

Innihaldsefni: OLEA EUROPAEA FRUIT OIL, CANNABIS SATIVA BIOMASS EXTRACT, MIXED TERPENES (LIMONENE, LINALOOL), CERA ALBA Þykknið inniheldur engin gervi- litar- eða lyktarefni. Í þessu þykkni, eins og í ýmsum öðrum CBD húðvörum, eru engin efni sem ekki er óhætt að borða (e. eatable).  
Ábending: Börnum, barnshafandi konum og konum með barn á brjósti er ekki ráðlagt að nota þykknið. Ef upp koma óþægindi í húð eða þykknið berst í augu skal skola með vatni. Ráðlögð notkun: Einn snúningur 2-3 sinnum á dag
Vörukarfa