Elderberry, illiber á íslensku, hafa verið notuð til lækninga í gegnum aldirnar og eru núna að öðlast vinsældir á ný til að styrkja ónæmiskerfið gegn árstíðarbundnum pestum. Illiber innihalda einstaka samsetningu pólyfenóla. Pólyfenólar eru litarefni sem gefa plöntunum allan litaskalann og það má segja að hver litur gegni ákveðnu hlutverki, þetta litarefni kallast jurtablámi og er í blómum og litríkum plöntum og fæðu úr jurtaríkinu. Jurtablámi er mjög styrkjandi fyrir ónæmiskerfið og er sérstaklega góð andoxun fyrir frumurnar.
Rannsóknir sýna að meiri neysla á jurtabláma getur dregið úr bólgum, getur styrkt hjarta og æðakerfið, stuðlað að heilbrigði fruma, dregið úr bólgum og haldið blóðsykri í æskilegu jafnvægi.
Illiber innihalda:
- Nærri fjórum sinnum meiri jurtabláma en önnur algeng ber til neyslu og einstakan fjölbreytileika þessara litarefna.
- Mikilvæg flavóníð eins og t.d. quercetin.



