Hyaluronic sýra er nauðsynleg öllum liðum en þar spilar hún mikilvægt hlutverk í að halda liðum og brjóski vel smurðum og mjúkum. Framleiðsla hennar minnkar með aldrinum sem getur að hluta til verið ástæða þess að liðavandamál gera vart við sig þegar aldurinn færist yfir.
Hyaluronic sýran er líka mikið notuð fyrir húðina en vegna einstakra rakagefandi eiginleika þykir hún jafna rakastig húðarinnar, gera hana stinnari og jafvel draga úr hrukkum og misfellum.
Kollagen er ómissandi uppbyggingarefni alls bandvefs sem og kondrótín en það er sama sagan með þau eins og hyaluronic sýruna; með aldrinum verður minna til í líkamanum. Bæði stuðla því að bættri liðheilsu og er kondrótín jafnvel talið geta minnkað verki frá liðum.





