Mercola Magnesíum L-threonate 270hylki

25.230 kr.

Magnesium L-Threonate

270 hylki

Lagerstaða: Á lager

Magnesíum er lífsnauðsynlegt steinefni sem við fáum oft ekki nóg af úr fæðunni.

Magtein eða magnesíum L-threonate nýtist líkamanum auðveldlega og rannsóknir benda til þess að það eigi greiðari leið upp í heila en önnur form af magnesíum.

Magtein hefur ekki hægðalosandi áhrif og hentar því vel þeim sem eru viðkvæmir í maga.

Magnesíum hefur mörgum hlutverkum að gegna í líkamanum. Það kemur við sögu í yfir 300 efnahvörfum og því ákaflega mikilvægt til þess að öll líkamskerfi geti starfað rétt. Sem dæmi um hin mörgu hlutverk magnesíum má nefna:

  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega vöðvavirkni – einkum vöðvaslökun
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega taugavirkni – einkum taugaslökun
  • Ómissandi þáttur orkuvinnslu í hverri einustu frumu líkamans
  • Nauðsynlegt fyrir eðlilega starfssemi hjarta og æðakerfis – spilar t.d. mikilvægt hlutverk í að viðhalda eðlilegum blóðþrýstingi
  • Mjög mikilvægt fyrir beinheilsu – nauðsynlegt til að tryggja eðlilega beinþéttni og endurnýjun beina
Ráðlagður skammtur: 3 hylki á dag, gott að taka 2 hylki um miðjan dag og 1 hylki um 2 tímum fyrir svefn
Vörukarfa