Mercola Immune support 90 v/hylki

4.609 kr.

Dr. Mercola hefur sett saman blöndu fyrir ónæmiskerfið sem inniheldur vítamín, jurtir og sérstaka amínósýru (DMG) og eru þessi efni sérstaklega samsett til að byggja upp og styrkja ónæmiskerfið okkar. Ónæmiskerfi líkamans veikist töluvert eftir því sem við eldumst og því gott vita um leiðir til að styrkja það.

Lagerstaða: Á lager

- +

Ónæmiskerfið okkar tekst á við það verkefni hverja stund að greina sýkla og sjúkdómsvaldandi örverur, eða allt það sem kemur til okkar utanfrá og tilheyrir ekki líkama okkar. Ónæmiskerfið myndar síðan í gegnum ákveðið ferli mótefni eða ónæmi gegn hverri og einni örsmárri örveru. Þetta er ótrúlega margþætt og stórbrotið varnarkerfi sem líkaminn okkar býr yfir og hreint magnað fyrirbæri sem er kraftaverki líkast.

Heilbrigt ónæmiskerfi er lykillinn að varanlega góðri heilsu. Það er margt sem getur dregið úr ónæmisvirkni, þar má nefna streitu, líkamleg og tilfinningaleg áföll, næringarsnautt fæði sem leiðir af sér skort á vítamínum, steinefnum og annarri nauðsynlegri næringu, ónógur svefn, óheilbrigður lífsstíll, árstíðaskifti og öldrun; eftir sextugt er talið að einungis 10 % virkni sé til staðar þó að það sé vissulega einstaklingsbundið.

Fullorðnir til uppbyggingar mega taka 3 hylki tvisvar daglega í allt að 10 daga.
Vörukarfa