Mercola Betaine HCL og pepsin

4.609 kr.

Betaine HCL (saltsýra) með pepsin, tvö innihaldsefni magasafans, gagnast þeim vel sem hafa of lágar magasýrur. Við þurfum að hafa sterkar magasýrur, með réttu ph gildi, til að brjóta fæðuna almennilega niður áður en hún fer lengra og til að gera skaðlega sýkla í maganum óvirka áður en þeir ná að fara lengra niður í meltingarveginn. Sterkar magasýrur eru forsenda góðrar næringarupptöku í smáþörmunum.

Lagerstaða: Á lager

- +

Betaine HCL og pepsin býr til óvinveitt umhverfi í maganum fyrir skaðlegar örverur/sníkjudýr eins og gersveppi, óvinveittar bakteríur/vírusa og skaðlegan sveppagróður. Rétt sýrustig verður að vera til  staðar til að verjast óheilbrigðri sjúkdómsmyndun í þörmunum ( t.d. leaky gut syndrome). Án nægjanlega sterkrar magasýru til að brjóta niður fæðuna getur safnast upp ómelt fæða í þörmunum sem síðan berst inní blóðrásina og getur með tímanum orsakað margskonar heilsufarsvandamál.

Betaine HCL með pepsin eflir eðlilega framleiðslu bris- og gall ensíma sem eykur næringaupptöku á kolvetnum, próteini, steinfnum og annarri næringu eins og  c-vítamíni, b-12, beta-karótíni, járni, sínki, magnesium, kalki and fólati.

Nægjanlega sterkar magasýrur koma í veg fyrir candida ofvöxt í smáþörmunum og viðhalda heilbrigðu sýrustigi.

Heilbrigði magaflórunnar hefur svo sannarlega áhrif á húðina, margsskonar húðvandamál eins og exem, húðbólga, rósroði og  bólur af öllum gerðum, eru beintenging við meltingarvandamál eins og of lágar magasýrur.

Það er margt sem getur orsakað of lágar magasýrur, með aldrinum eiga þær til að lækka, líka  einhæft matarræði, vítamín og steinefnaskortur. Óheilbrigður lífsstíll eins og reykingar, streita, of mikið alkóhól og mikil lyfjanotkun hefur líka áhrif.

Of lágar magasýrur (hypochlorhydria) geta valdið:

  • Brjóstsviða
  • Uppþembu og gasmyndun í þörmum
  • Óeðlilegri þreytu
  • Járnskorti og blóðleysi
  • Vítamín – og steinefnaskorti
  • Viðvarandi hárlosi
  • Ómeltri fæðu í hægðum
  • Óeðlilegum langvarandi niðurgangi sem orsakast af sníkjudýrum (giardiasis)

 

 

 

Fullorðnir, 1 hylki í byrjun máltíðar, þrisvar á dag.
Vörukarfa