Vinsælasta leiðin til að nota heil fjörugrös er er að búa til hlaup sem er síðan hægt að nota í fullt af uppskriftum eins og í þeytinga, sósur, ís, eða bara taka það inn með skeið, möguleikarnir eru óendanlegir.
Aðferð:
- ½ bolli af þéttpökkuðum fjörugrösum.
- Setjið í meðalstóra skál og hellið nægu vatni yfir til að hylja grösin.
- Látið liggja í bleyti í nokkrar mínútur, nuddið síðan varlega og fjarlægið óhreinindi, skeljar eða annað rusl af yfirborðinu.
- Hellið vatninu af og fyllið skálina aftur með fersku vatni nokkrum sinnum og endurtakið hreinsunarferlið.
Köld aðferð:
- Þegar mosinn lítur út fyrir að vera hreinn er hann lagður í bleyti yfir nótt við stofuhita.
- Sigtið vatnið frá
- Bætið mosanum í blandara og blandið saman á miklum hraða. Á meðan blandað er, hellið smám saman nóg af bleytivatninu út í til að ná æskilegri þykkt.
- Þegar blandan er orðin slétt og rjómalöguð er hún sett í krukku með loftþéttu loki eða í ísbakka til að móta litla mola.
- Geymist í kæli í 3-4 vikur eða í frysti í allt að 3 mánuði
Heit aðferð:
- Þegar bíúið er að hreinsa mosann er hann lagður í bleyti í um það bil klukkustund.
- Stigtið vatnið frá.
- Hitið 1 ½ bolla af vatni að suðu í potti, takið síðan af hitanum og látið kólna í 5 mínútur.
- Bætið vættum mosanum og heitu vatni í blandara og blandið þar til blandan er slétt og einsleit.
- Hellið hlaupinu sem myndast í krukkur með loki eða í ísbakka eða lítil form og látið kólna í kælli
Geymið í loftþéttum umbúðum í kæli í 3-4 vikur eða í frysti í allt að 3 mánuði.