Vísindamenn keppast við að birta rannsóknir um gagnsemi góðgerla fyrir meltinguna og taugarnar, en rannsóknir leiða einnig í ljós að gagnlegt er að hafa heilbrigða og fjölbreytta gerlaflóru í leggöngunum.
Leggöng kvenna búa yfir sínu eigin lífkerfi; fjölbreyttu safni baktería, eða gerla. Þar þrífast, undir heilbrigðum kringumstæðum, gagnlegar bakteríutegundir í góðu innbyrðis jafnvægi, en röskun á þessu jafnvægi, eða skortur á góðu tegundunum, getur skapað vandræði og ofvöxt óæskilegra baktería eða sveppa.
Lactobacillus gerlar eru tegund af gagnlegum bakteríum sem finna má hjá heilbrigðum einstaklingum í meltingarvegi og leggöngum. Fleiri en 20 tegundir lactobacillus fyrirfinnast í leggöngum í heilbrigðu ástandi.
Fjöldi rannsókna sýna fram á að inntaka um munn á þessum tilteknu góðgerlum getur stuðlað að:
- Auknum fjölda lactobacillus gerlategunda eftir 60 daga, meiri fjölda en hjá samanburðarhóp sem tók inn lyfleysu.
- Minna af sveppasýkingum og óæskilegum bakteríum.
- Nýjum nýlendum æskilegra góðgerla í leggöngum og endaþarmi.
- Kjörnu sýrustigi í leggöngum sem stuðlar að myndun æskilegrar gerlaflóru.
- Betri alhiða heilsu leggangaflórunnar.
Vísindamenn hafa komist að því að bifidobakteríur og lactobacillus gerlar styðja vel við alhliða heilsu kvenna í gegnum bætta meltingu, enda er hún oft talin grunnur allrar heilsu.
Góðgerlarnir henta konum á öllum aldri.




