Mercola Meltingarensím 90hylki

6.917 kr.

Breiðvirk meltingarensím sem bæta meltinguna, styðja við ónæmiskerfið, stuðla að  frumuheilbrigði og margt fleira.

Lagerstaða: Á lager

- +

Margir finna daglega fyrir óþægindum eftir máltíðir, eins og bjúgmyndun, miklum vindgangi, magaverk og öðrum meltingarvandamálum. Meltingarvandamál geta verið af margvíslegum toga en oftast stafa þau af skorti á meltingarsöfum og meltingarensímum sem gegna aðalhlutverki í niðurbroti fæðunnar. Inntaka á meltingarensímum getur hjálpað við þessum vandamálum, þau geta hjálpað þörmunum að ná eðlilegri virkni og líkamanum að framleiða eigin meltingarensím sem eru svo nauðsynleg til að breyta fæðu í næringu og orku .

Meltingarensímin frá Dr. Mercola innihalda allan skalann af meltingarensímum og eru sett saman eftir vísindalegri formúlu, þau hjálpa líkamanaum við framleiðslu eigin meltingarensíma, stuðla að bættri meltingu og hjálpa meltingarfærunum að brjóta fæðuna niður í nýtanleg mólikúl sem líkaminn notar til að búa til orku og viðhalda heilbrigði fruma.

Meltingin byrjar í munninum þegar við tyggjum matinn, þar á sér stað fyrsta niðurbrot fæðunnar með ensímum sem verða til í munnvatninu. Það er margt sem getur stuðlað að lélegri framleiðslu meltingarensíma og oft erfitt að segja hvað er orsök og hvað er afleiðing, en þættir eins og öldrun, einhæft matarræði, léleg útseytlun í briskirtli, bólgur og fleira geta dregið úr framleiðslu meltingar- ensíma.

Formúlan fyrir ensímblöndunni:

  • Er hugsuð fyrir þá sem borða hefðbundið matarræði og inniheldur ensím styrk sem hæfir þeim sem framleiða ekki næg ensím, hvort sem er vegna öldrunar eða annarra þátta.
  • Inniheldur 22 ólík meltingarensím sem gegna mismunandi hlutverkum í niðurbroti á fæðunni þar af fjórar blöndur sem hjálpa til við niðurbrot á fitu, próteinum, trefjum og fleiru.
  • Vinnur á mismunandi stigum meltingarinnar við að brjóta niður fæðuna og getur komið í veg fyrir vindgang, bjúg og önnur meltingaróþægindi.
  • Er hönnuð til að brjóta fæðuna fljótt niður og draga úr meltingaróþægindum.
  • Inniheldur Adenósínþrífosfat (sem líkaminn notar til orkumyndunar í frumum) til að hefja meltingarferlið.
  • Inniheldur kröftug ensím frá jurtum, vinveittum bakteríum og sveppum í staðinn fyrir ensím frá dýrum.
  • Inniheldur ekki erfðabreytt efni.

 

Ráðlagður dagsskammtur: 1 hylki þrisvar á dag með mat
Vörukarfa