Þegar við erum ung framleiðir líkaminn nóg kollagen til að halda vefjum líkamans sveigjanlegum og unglegum. En þegar við eldumst minnkar kollagen framleiðslan og það dregur úr styrk og stinnleika húðarinnar og hún verður smám saman þynnri, slappari i og hrukkur myndast.
Kollagen úr beinaseyði er líkamanum mjög aðgengilegt til uppbygginar og inniheldur næringarefni sem styðja við heilbrigða húð, hár og neglur, á sama tíma og það styrkir bein, liðamót, vöðva og þarma. Kollagenið er unnið úr dýrum frá sjálfbærum búskap sem fá eingöngu lífrænt fóður, sem er þar af leiðandi óerfðabreytt.







