Mercola D-Mannose

4.897 kr.

Náttúruleg lausn við þvagfærasýkingum!

D-Mannose er einsykra sem virðist virka nánast eins og galdur á þvagfærasýkingar. Þessi sérstaka einsykra hefur þann eiginleika að geta bundist bakteríum sem valda sýkingum í þvagfærum. Þannig kemur hún í veg fyrir að þessar bakteríur geti tekið sér bólfestu í þvagblöðrunni og þær skolast út með þvaginu.

Lagerstaða: Á lager

- +
Vörunúmer: 010528 Flokkar: , ,

Þvagfærasýkingar eru algengt heilsufarsvandamál. Þær eru algengari hjá konum en karlar eru alls ekki undanskildir. Þetta er ákaflega hvimleiður og oft sársaukafullur kvilli sem hjá sumum verður viðvarandi vandamál sem erfitt reynist að leysa úr. Ef læknir greinir þvagfærasýkingu vísar hann á sýklalyf til að ráða bug á sýkingunni. Margir kjósa þó að reyna náttúrulegar lausnir fyrst til að forðast það að raska þarmaflórunni og verður þá trönuberjasafi eða hylki oft fyrir valinu. Hvort sem valið er að nota sýklalyf eða náttúrulegar lausnir er raunin sú að báðar geta brugðist. Ýmsir lenda í því að sýklalyf virka ekki á sýkinguna og hún kemur sífellt upp aftur, verður krónísk. Aðrir lenda í því að náttúrulegar lausnir duga ekki til og nauðsynlegt getur reynst að leita annarra leiða

  • D-Mannose er hægt að nota sem fyrirbyggjandi meðferð jafnt sem á virka sýkingu og hefur meira að segja gefið góða raun við krónískum þvagfærasýkingum sem svara ekki sýklalyfjameðferð.
  • Í þessari blöndu er auk D-mannose, góðgerlablanda til að styrkja gerlaflórujafnvægi líkamans, FOS trefja og trönuberjaextrakts.

Glútenlaust – sojalaust – ekkert erfðabreytt

Ráðlagður dagskammtur: 2 hylki á dag
Vörukarfa