Svartfræolía (unnin úr Nigella sativa) er vel þekkt í aldanna rás vegna margskonar heilsubætandi eiginleika sem hún er talin hafa vegna virka efnisins Þýmókínón (TQ) sem er náttúrulegt plöntuefnasamband og aðal lífvirka efnið í olíunni og er þekkt fyrir fyrir að hafa margskonar heilsueflandi eiginleika:
- Stuðningur við öndunarfæri og ónæmiskerfi: vegna bólgueyðandi áhrifa þess virkar það berkjuvíkkandi og getur því dregið úr einkennum astma, berkjubólgu og ýmsum ofnæmiseinkennum, og verið ónæmisstyrkjandi.
- Blóðsykursstjórnun: rannsóknir benda til þess að það geti hjálpað til við að lækka blóðsykur, HbA1c gildi og insúlínviðnám. Það er talið geta hjálpa til við að lækka heildarkólesteról, LDL (slæmt) kólesteról og þríglýseríð og styðja við heilbrigð HDL gildi.
- Húð- og hárumhirða: getur hugsanlega dregið úr unglingabólum, sóríasis og exemi vegna bakteríudrepandi og bólgueyðandi eiginleika, styðja við hárvöxt og draga úr hárlosi og næra hársvörð.
- Liðheilsa: olían er jafnvel þekkt fyrir að hjálpa til við að draga úr liðverkjum, stirðleika og bólgum sem tengist slitgigt og ýmsum bólgusjúkdómum.
- Stuðningur við lifur: lífvirka efnið er talið hjálpa til við að vernda lifur og bæta virkni hennar, einnig talið styðja við heilbrigða þarmaflóru, draga úr bólgum í þörmum og hjálpa til við að bæta leka þarma (leaky gut syndrome) og hugsanlega reynast vel gegn ákveðnum lyfjaónæmum bakteríum og sveppum í meltingarvegi.




