Medis Q10-Complex

5.800 kr.

Medis Q10 Complex inniheldur kóensím Q10 , bæði sem úbíkínól og úbíkínón. Ekki allir umbreyta úbíkínóni á skilvirkan hátt í virka form þess, (úbíkínól) vegna erfðafrávika, þetta tvíþætta efnasamband er því bæði aðgengilegt og áhrifaríkt. Kóensím Q10 (CoQ10) er andoxunarefni sem líkaminn framleiðir náttúrulega, en þegar aldurinn færist yfir, ca um þrítugt, hægist á framleiðslunni. Frumur líkamans nota CoQ10 til vaxtar og viðhalds og er einnig lýkilþáttur fyrir hjartaheilsu. Formúlan er þróuð með Medis Technology™, tækni sem er hönnuð til að varðveita gæði næringarefna og auka lífvirkni þeirra.

Ekki til á lager

Kóensím Q10 (úbíkínól og úbíkínón)

Q10 gegnir lykilhlutverki í orkuframleiðslu í hvatberum, þar sem það hjálpar til við að mynda ATP grunnorkusameind líkamans. Það virkar einnig sem öflugt andoxunarefni, verndar frumur gegn oxunarálagi og styður við hjarta og æðakerfi og vöðvastarfsemi. Fólk sem tekur statín (kólesteróllækkandi lyf) hefur oft gagn af Q10 viðbót, þar sem þessi lyf geta dregið úr náttúrulegu Q10 magni líkamans

E-vítamín (öll tókóferól og tókótríenól)

E-vítamín vinnur náið með Q10 til að vernda frumuhimnur gegn oxunarálagi. Medis Q10 Complex inniheldur allar náttúrulegar gerðir e vítmíns: alfa, beta, delta og gamma tókóferól og tókótríenól.

B-vítamín (b2, b3 og b12)

B2 vítamín (ríbóflavín), b3 (níasín) og b12 (metýlkóbalamín) eru sem lykilþættir í sömu frumuorkuleiðum og Q10. Saman hjálpa þau til við að styðja við starfsemi hvatbera, bæta efnaskipti og styðja við taugakerfið og huglægan skýrleika.

Selen (Metýlselenósýstein, MSC)

Selen styður við ónæmiskerfið, verndar Q10 gegn oxun og eykur skilvirkni þess í frumum, ásamt því að styðja við andoxunferla í líkamanum.

Coenzym Q10 199 mg: ubiquinol 50 mg, ubedecarenon 50 mg. Gerjað bygggras exrtakt og gerjuð brenninetla. Jurta hylki, óerfðabreytt, án súlfats, án glútens, vegan.
Ráðlagður skammtur, 2 hylki á dag.
Vörukarfa