Meira um A-vítamín:
A vítamínið frá Viridian er fituleysanlegt, a vítamín er nauðsynlegt fyrir mörg líkamskerfi og þjónar sem byggingarefni fyrir frumur. Það er talið gegna mikilvægu hlutverki til að styðja við ónæmiskerfi og náttúrulegar varnir líkamans. A vítamín stuðlar að eðlilegri starfsemi og uppbyggingu húðarinnar og gegnir mikilvægu hlutverki til að viðhalda heilbrigðri sjón, að auki styður a vítamín við eðlileg járnefnaskipti. Það gegnir einnig hlutverki í sérhæfingu frumna og stuðlar að viðhaldi eðlilegrar slímhúðar. A vítamín frá Viridian er í formi retínólasetats sem líkaminn skilur og umbreytir í retínósýru og er vegan.
Inniheldur 100% virk innihaldsefni, samsett af sérfróðum næringarfræðingum. Framleitt samkvæmt ströngum siðferðilegum viðmiðum Viridian, engar dýraprófanir, erfðabreyttar lífverur eða pálmaolía.





