Andlitshreinsir með ametyst, glýkolík, laktík og daggarstjarna ( e. True unicorn root). Endurnýjandi, bætandi og rakagefandi. Hentar fyrir allar húðgerðir.
Ametyst? Rósar qvarz? Daggarstjarni? Er þetta einhvers konar töfranisti sem hetjan okkar þarf að finna áður en hún nær að sigrast á hinu illa? Ja… ekki alveg. Um er að ræða andlitshreinsi sem er kremkenndur þegar hann kemur úr túbunni en freyðir þegar hann er notaður. En hann er magnaður og töfrum gæddur! Og öll túban glitrar! Einu sinni fyrir langa löngu tóku ljómandi og skínandi daggarstjarni og rakagefandi hampfræjaolía höndum saman með ametyst og rósar kvarzi til að sigrast á daufri og þreyttri húð og gleði og hið góða ríktu eftir það í landi andlitsins.
Engir einhyrningar voru meiddir við framleiðslu á þessari vöru. Þessi lausn inniheldur milda alpha hydroxý sýru (glýkolík og laktík) sem virkar endurnýjandi og húðslípandi til að auka gljáa húðarinnar.
Andlitshreinsirinn er unninn úr jurtum og náttúrulegri fæðu, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.
Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.






