Þurrsjampó með kakaói og rósmaríni.
Fljótvirkandi þurrsjampó sem er auðvelt í notkun. Það dregur í sig olíur og óhreinindi án þess að þurfi að skola hárið. Hentugt og áhrifaríkt.
Þurrsjampóið er unnið úr jurtum og náttúrulegum fæðuefnum, innihaldsefnin eru lífræn, kjarnaolíurnar eru hreinar og umbúðirnar eru vistvænar. Í vörurnar fer bara það besta.
Acure nota engin skaðleg efni í snyrtivörurnar sínar og meirihluti innihaldsefna eru vottuð lífræn. Allar vörur frá Acure eru vegan og án parabenefna, jarðolíu, formaldehýðs og súlfats. Þær eru án míkróplastefna, vaselíns og formalíns og eru framleiddar án þess að notast sé við hliðarafurðir úr dýrum og eru „Cruelty Free“ sem þýðir að þær eru framleiddar án grimmdar gagnvart dýrum og að þau stunda ekki tilraunir á dýrum.







