AstaEye – Augnlæknar mæla með
AstaEye inniheldur andoxunarefnið astaxanthin, lútein, zeaxantín ásamt fleiri vítamínum og steinefnum, sérstaklega samsett til að styðja við almenna augnheilsu.
Augnlæknar mæla með AstaEye. AstaEye byggir á einni stærstu klínísku rannsókn sem framkvæmd hefur verið í Bandaríkjunum og kallast AREDS2*. Niðurstöður leiddu í ljós að þeir þátttakendur sem tóku inn sink, kopar, lútein, zeaxthin ásamt öðrum vítamínum sem styðja við almenna augnheilsu, minnkuðu líkurnar á augnbotnahrörnun um 25%.
AstaEye inniheldur einnig astaxanthin þar sem það hefur jákvæð áhrif á augnbotna og getur minnkað líkurnar á augnþreytu- og þurrki sem svo margir upplifa með hækkandi aldri.
Augnbotnahrörnun er sjúkdómur sem leggst á miðgróf sjónhimnu í augnbotnum og skerðir sjónskerpu og lestrarsjón. Sjúkdómurinn er algengasta orsök lögblindu á Íslandi hjá einstaklingum eldri en 50 ára. Hrörnun í augnbotnum er algengari með hækkandi aldri. Hægt er að hægja á sjúkdómnum og draga úr líkum á hrörnun með inntöku vítamína.
*AREDS2 rannsókn National Eye Institute er skrásett vörumerki United States Department of Health and Human Services.






