SagaNatura Asta Energy

4.296 kr.

Energy getur:

  • Dregið úr þreytu
  • Dregið úr streitu
  • Bætt einbeitingu

Lagerstaða: Á lager

Vörunúmer: 10063 Flokkur:

Energy – Fæðubótarefni

Energy er sérstaklega samsett vítamínblanda til að skerpa athygli og gefa aukna orku.

Energy getur:

  • Dregið úr þreytu
  • Dregið úr streitu
  • Bætt einbeitingu

Fyrir hverja?

  • Íþróttafólk fyrir æfingu
  • Námsmenn
  • Konur á breytingaskeiði
  • Þá sem þurfa aukna orku fyrir daglegt amstur

Blandan inniheldur burnirót, L-theanín, 105 mg koffín m.a. úr guarana fræjum ásamt B-vítamín blöndu (B5, B6 og B12 vítamín). Burnirót og L-theanín eru jurtir sem eru taldar auka einbeitingu. Burnirót er einnig talin vera góð til að vinna gegn síþreytu og orkuleysi. Koffín getur dregið úr þreytu og örvað taugakerfið.

Burnirót á sér langa sögu sem lækningajurt eða aftur til ársins 77 e.Kr. og stuðlar hún að almennri vellíðan og jafnvægi í líkamanum. Rótin virðist virka vel meðal annars gegn stressi, einbeitingarskorti og getur stuðlað að bættum árangri fólks í íþróttum. Koffín er örvandi efni sem finnst í náttúrunni, til dæmis í kaffi, tei, kakó og súkkulaði. Gæta þarf þess að neyta koffíns í hóflegu magni og eru þau 105 mg af koffíni sem Energy inniheldur, vel undir hóflegum mörkum.

L-theanín er rannsakað bætiefni sem stuðlar að auknu jafnvægi, sér í lagi með samhliða inntöku koffíns.

Innihald: Burnirót, hrísgrjónamjöl, L-theanín, hylki úr jurtabeðni (HPMC), koffín, kalsíum pantóþenat (B5-vítamín), guarana fræ extrakt, pýrídoxín HCl (B6-vítamín), sýanókóbalamín (B12-vítamín).  
Ráðlagður neysluskammtur: 2 hylki.   Tvö hylki innihalda: • Burnirót 333 mg • Koffín 105 mg • L-theanín 200 mg • B5-vítamín 12 mg (200% NV) • B6-vítamín 3,5 mg (250% NV) • B12-vítamín 25 mcg (1000% NV) • Önnur innihaldsefni: hylki úr jurtabeðmi Geymist á þurrum og svölum stað þar sem börn ná ekki til. Ekki er ráðlagt að neyta meira af vörunni en ráðlagður daglegur neysluskammtur segir til um. Fæðubótarefni koma ekki í stað fjölbreyttrar og hollrar fæðu. Barnshafandi konum, konur með barn á brjósti, börn undir 18 ára aldri og fólk með sjúkdóma er ávallt ráðlagt að leita álits læknis eða annars sérfræðings áður en tekin eru inn fæðubótarefni.
Vörukarfa