PS Lífrænt rauðrófusafa duft

6.990 kr.

Rauðrófuduft er stútfullt af andoxunarefnum og öðrum heilsubætandi plöntuefnum, það er talið:

  • Styrkja starfssemi lifrarinnar
  • Auka blóðflæði og er náttúruleg uppspretta nitric oxide – gagnast því hjarta og æðakerfi
  • Auka úthald og getu við æfingar
  • Vera blóðstyrkjandi og hreinsandi

Lagerstaða: Á lager

- +

Fróðleikur um rauðrófur:

Fyrr á öldum óx rófa villt meðfram ströndum Evrópu og var notuð sem lækningajurt. Sennilega vegna þess hversu rík rauðrófan er af járni og getur þannig bætt blóðleysi og slappleika, lækkað blóðþrýsting og haft jákvæð áhrif á hreinsun lifrarinnar. Nú á tímum er rauðrófan nytjaplanta sem vex hvergi villt. Auk þess að vera rík af járni inniheldur rauðrófan andoxunarefnin A vítamín og C vítamín. Andoxunarefnin geta komið í veg fyrir skaðleg áhrif sindurefna á lifandi frumur líkamans. Þannig getur rauðrófuduft haft fyrirbyggjandi áhrif á sjúkdóma eins og hjarta og æðasjúkdóma, krabbamein og liðagigt. Rauðrófuduft er líka ríkt af fólínsýru, magnesíum og kalki.

  • Pure Synergy notar eingöngu óerfðabreytt vottuð lífræn innihaldsefni í bætiefni sín. Fyrirtækið skuldbindur sig að nota eingöngu innihaldsefni úr hreinum matvælum sem eru ræktuð án þess að nota kemísk efni eins og skordýraeitur og tilbúinn áburð. Fyrirtækið notar ekki fylliefni, skaðleg leysiefni né rotvarnarefni í vörur sínar.
  • Fyrirtækið blandar saman visku aldanna um læknigarmátt plantna, ásamt öllu því sem nútíma vísindi bjóða uppá varðandi úrvinnslu og varðveislu næringarefna.
  • Vörurnar eru undir ströngu eftirliti fyrir þungmálmum, örverum og öðrum óæskilegum efnum til að tryggja öryggi og virkni vítamína, steinefna og annarra virkra efna. Flest næringarefnin eru dregin úr plöntum sem þykkni sem magnar upp eiginleika þeirra. Efnin eru síðan þurrkuð á þann hátt sem tryggir næringargildi þeirra og þeim pakkað í lofttæmdar umbúðir til geymslu.
  • Pure Synergy er með strangar kröfur varðandi innihaldsefni og vinnur með virtum ISO-viðurkenndum rannsóknarstofum með sérþekkingu á plöntum.

 

 

Notkun: Blandið 1 tsk út í 1/2 - 1 bolla af vatni, djús eða uppáhalds þeytinginn. Besti árangur næst með reglulegri notkun.  
Vörukarfa