Medis Thyroid+ 60hylki

6.303 kr.

Medis Thyroid+ blandan samanstendur af lykil næringaefnum sem styðja við heilbrigði skjaldkirtils, orkubúskp og hormónajafnvvægi. Blandan inniheldur m.a aðlögunarefni (adoptogens) og lækningasveppi sem næra skjaldkirtilinn og hjálpa líkamanum að takast á við streitu. Formúlan er þróuð með Medis Technology sem varðveitir gæði næringarefna og styður við lífvirkni þeirra.

Ekki til á lager

Hormónajafnvægi gegnir lykilhlutverki í skjaldkirtilsstarfsemi. Hækkað estrógenmagn, sem getur verið algengt hjá konum eftir 35 ára aldur, eða hormóna ójafnvægi vegna annarra þátta, getur truflað skjaldkirtilsstarfsemi með því að auka skjaldkirtils bindandi prótein í blóði. Þetta dregur úr starfsemi  skjalkirtilshormónsins T3 (tríjoðtýrónín) í frumum, og getur leitt til einkenna lágrar skjaldkirtilsstarfsemi, jafnvel þótt blóðprufur virðist eðlilegar. Aðlögunarefnin og samsetning næringarefna í Medis Thyroid+, svo sem ashwagandha, selenium og Coleus forskohlii  hjálpa til við að  koma jafnvægi á skjalkirtilshormóna og tryggja að hormónin haldist virk, skilvirk og áhrifarík í líkamanum.

Þari (Fucus vesiculosus)

Þarinn sem er notaður í þessari formúlu er náttúrulega ríkur af joði og inniheldur fúkóídan sem er lífvirkt efnasamband og hefur verið rannsakað vegna eiginleika þess til að draga úr hungri og matarlyst. Þetta efnasamband er talið stjórna blóðsykri og styðja við heilbrigð efnaskipti. Fúkóídan veitir einnig andoxunarvörn og stuðlar að jafnvægi í orkubúskap út daginn. Að auki býður þarinn upp á yfir 60 næringarefni, þar á meðal snefilefni, vítamín og pólýfenól, sem stuðla að almennum lífsþrótti og vellíðan.

L-TÝRÓSÍN

Nauðsynleg amínósýra og aðal byggingareining skjaldkirtilshormónanna T3 (tríjoðtýrónín) og T4 (týroxín). Án nægilegs týrósíns getur skjaldkirtillinn ekki framleitt þessi hormón á áhrifaríkan hátt, týrósín vinnur einnig ásamt joði að myndun skjaldkirtilshormóna sameinda, sem er mikilvægt fyrir eðlilega skjaldkirtilsstarfsemi. Nægilegt magn styður við stöðuga orku, efnaskipti og skýrleika. Týrósín gegnir einnig hlutverki í framleiðslu dópamíns og noradrenalíns, taugaboðefna sem hafa áhrif á skap, einbeitingu og streituþol.

CORDYCEPS (10:1 þykkni)

Cordyceps sveppurin inniheldur virk efni eins og cordycepin, adenosine, fjölsykrur, steról og núkleósíð. Þessi efni vinna saman að því að auka orku, súrefnisnýtingu og hvatberastarfsemi. Lífvirku efnin bæta ATP framleiðslu, sem gerir frumur skilvirkari í orkuframleiðslu. Fyrir heilbrigði skjaldkirtilsins styður cordyceps við tengslin milli nýrnahettna og skjaldkirtils og hjálpar til við að draga úr þreytu og streituálagi sem oft tengist skjaldkirtilsstarfsemi. Með því að bæta súrefnisupptöku í blóði, getur cordyceps hjálpað til við að vinna gegn hægfara efnaskiptum, kuldaóþoli og lítilli orku sem oft tengist lágri skjaldkirtilsstarfsemi. Fjölsykrurnar og andoxunarefnin hjálpa einnig til við að stjórna ónæmissvörun og draga úr bólgum. Hæfni cordyceps til að halda kortisóli í jafnvægi og bæta frumuþol gerir það að verðmætu aðlögunarefni til að viðhalda virkni skjaldkirtilshormóna.

REISHI (10:1 þykkni)

Reishi sveppir eru ríkir af tríterpenum (ganoderínsýrum), fjölsykrum (β-glúkönum), sterólum, peptíðum og andoxunarefnum. Þessi efnasambönd vinna saman að því að stjórna ónæmisstarfsemi og draga úr langvinnnum bólgum með því að róa ofvirkt ónæmiskerfi. Reishi er sérstaklega mikilvægur vegna hugsanlegra sjúkdóma í skjaldkirtils eins og Hashimoto eða Graves. Ónæmisstýrandi β-glúkanar í reishi hjálpa til við að jafna Th1/Th2 svörun og draga úr mótefnum gegn skjaldkirtilsvef. Tríterpenar í reishi veita einnig sterka bólgueyðandi og andoxunarvörn, sem verndar skjaldkirtilsfrumur fyrir oxunarálagi. Með því að styðja við jafnvægi nýrnahettna og draga úr kortisólofhleðslu bætir reishi óbeint stjórnun skjaldkirtilshormóna og efnaskipti. Reishi getur einnig hjálpað við algeng vandamál tengd skjaldkirtilinum eins og þreytu, kvíða og svefn vandamála með því að stuðla að slökun og jafnvægi í taugakerfinu.

ASHWAGANDHA (Withania somnifera, 10:1 þykkni)

Ashwagandha er þekkt aðlögunarefni sem inniheldur metanólíð, alkalóíða, saponín og sitóindósíð sem hjálpa líkamanum að aðlagast streitu og koma á jafnvægi í innkirtlakerfinu. Fyrir heilbrigði skjaldkirtilsins er ashwagandha ein af mest rannsökuðu jurtunum, rannsóknir sýna að hún getur örvað framleiðslu skjaldkirtilshormóna, sérstaklega T4, og bætt umbreytingu T4 í virka hormónið T3. Þetta gerir hana sérstaklega stuðningsríka fyrir einstaklinga með vanvirkan skjaldkirtil eða ójafnvægi í skjaldkirtilsstarfsemi. Með því að koma jafnvægi á kortisól og HPA-ásinn (undirstúku-heiladinguls-nýrnahettu) dregur ashwagandha úr streituknúinni bælingu á skjaldkirtilsstarfsemi sem getur verið algengur þáttur í ójafnvægi í skjaldkirtli. Andoxandi efnasambönd ashwagandha vernda einnig skjaldkirtilsvef gegn oxunarálagi og bólgum, sem oft sést í sjúkdómum í skjaldkirtli. að auki styður ashwagandha við orku, skap, svefn og vitsmunalegan skýrleika og vinnur vel með ýmsum einkennum sem tengjast lágri skjaldkirtilsstarfsemi.

COLEUS FORSKOLII (10% forskólín)

Coleus forskohlii er þekkt áyurvedísk jurt sem er gagnleg skjaldkirtilsvirkni á marga vegu,  m.a. hefur verið sýnt fram á að forskólín eykur joð upptöku í skjaldkirtlinum og örvar framleiðslu T3 og T4, sem hjálpar til við að virkja efnaskipti. Með því að auka cAMP stuðlar það einnig að orkuframleiðslu, efnaskiptum fitu og næringar efnaskiptum, ferlum sem oft eru minni þegar skjaldkirtill er vanvirkur. Forskólín styður við heilbrigða blóðrás, æðaspennu og súrefnisnotkun í frumum, sem eykur orku og dregur úr þreytu. Klínískar rannsóknir benda til þess að það geti einnig hjálpað til við að styðja við vöðvamassa og bæta efnaskipti fitu, sem  er talið stuðla að heilbrigðu þyngdarjafnvægi. Með því að bæta við aðlögunarefnum eins og ashwagandha, sem jafnar kortisól, hjálpar forskólín til við að skapa betri virkni á millis skjaldkirtils og nýrnahettustarfsemi. Áhrif þess á cAMP stjórna einnig fitusundrun, insúlínnæmi og hvatberastarfsemi, sem veitir víðtækan stuðning við orku- og efnaskiptajafnvægi.

SELEN (Metýlselenósýstein)

Selen er mikilvægt snefilefni sem styður eðlilega skjaldkirtilsstarfsemi með því að umbreyta T4 í virka formið T3. Það verndar frumur gegn oxunarálagi, styrkir andoxunarvörn líkamans og styður efnaskipti. Með því að vernda DNA og litninga gegn skemmdum hjálpar selen til við að viðhalda heilbrigðri frumustarfsemi og langtíma lífsþrótti. Rannsóknir benda til þess að það gegni mikilvægu hlutverki í að draga úr hættu á frumubreytingum og styrkja ónæmisvörn allt að 20–30 sinnum.

 

  Þari (Fucus vesiculosus), L-týrósín, cordyceps (10:1 þykkni), reishi (10:1 þykkni), ashwagandha (Withania somnifera, 10:1 þykkni), Coleus forskohlii (staðlað í 10% forskólín), selen (metýlselenósýstein).
2 hylki daglega með vatni. Ekki fara yfir ráðlagðan dagskammt. Fæðubótarefni ættu ekki að koma í stað fjölbreytts mataræðis og heilbrigðs lífsstíls. Geymið á þurrum stað við stofuhita, varið gegn beinu sólarljósi. Geymið þar sem börn ná ekki til.
Vörukarfa