LIONS MANE (Hericium erinaceus)
Lions mane er einstakur lækningasveppur sem er þekktur fyrir að örva taugavaxtarþátt (NGF), lykil efnasamband sem styður við endurnýjun og tengsl heilafrumna. Hann hjálpar til við að vernda taugafrumur, auka vitsmunalega getu og stuðla að skýrleika og einbeitingu. Regluleg notkun getur stutt við nám, minni og heilbrigði heilans með því að draga úr oxunarálagi og bólgum í taugavef.
BRAHMI (Bacopa monnieri)
Brahmi, einnig þekkt sem Bacopa, er klassísk ayurvedísk jurt sem er þekkt fyrir að auka minni, námsgetu og einbeitingu. Virku efnin í henni, bacosíð, styðja við samskipti milli heilafrumna með því að örva heilbrigði taugafruma, vöxt taugagripa og taugamóta. Þessi öfluga jurt hjálpar til við að draga úr oxunarálagi og stuðla að ró. Brahmi er aðlögunarjurt sem styður einnig við jafnvægi taugaboðefna (serótónín og dópamín), hún er talin draga úr kvíða og auka viðnám gegn streitu.
SINK (sink picolinate)
Sink er mikilvægt fyrir vitsmunalega virkni, taugaboð og heilbrigði heilans. Það styður yfir 100 ensímferla í heilanum. Nægilegt sinkmagn styður einnig við ónæmis- og andoxunarkerfin sem vernda heilavefinn. Sink stjórnar einnig bragðskyni, lyktarskyni og styður við góða sjón.
C VÍTAMÍN (úr Acerola, tyttuberjum og múltuberjum)
Náttúruleg andoxunarefna blanda sem verndar heilafrumur gegn oxunarálagi og styður við kollagen framleiðslu fyrir heilbrigðar æðar og súrefnisflutning í blóði. C vítamín hjálpar einnig við myndun taugaboðefna eins og dópamíns og noradrenalíns, sem eru nauðsynleg fyrir einbeitingu og huglæga virkni.
B VÍTAMÍN BLANDA.
B vítamínblandan í Medis Brain+ (b1, b2, b3, b5, b6, b7, b9, b12) styður við heilastarfsemi, taugaboðefnamyndun og taugaheilsu. B1, b2 og b3 umbreyta fæðu í heilaorku (ATP). b5 styður við asetýlkólínframleiðslu, taugaboðefni sem er nauðsynlegt fyrir minni og skilning. B6 (P5P) stjórnar m.a. upptöku magnesíums, sinks og króms. B9 (metýlfólat) og b12 (metýlkóbalamín) styðja við metýleringu, DNA viðgerðir og heilbrigða taugaboðleiðir. Saman hjálpa þessi vítamín til að viðhalda vitsmunalegri skerpu, einbeitingu og tilfinningalegu jafnvægi.


Lions mane (Hericium erinaceus), Brahmi-þykkni (Bacopa monnieri), sink (sinkpíkólínat), c vítamín (úr acerola, tyttuberjum og múltuberjum), b3 vítamín (níasín), b5 vítamín (pantótensýra), b2 vítamín (ríbóflavín), b6 vítamín (pýridoxal 5'-fosfat), b1 vítamín (þíamín), b7 vítamín (bíótín), b9 vítamín (metýlfólat), b12 vítamín (metýlkóbalamín). 

