Jörth Immun

9.900 kr.

Immun er einstakt bætiefni sem eflir ónæmiskerfið með öflugri blöndu af gerjaðri
broddmjólk, lysozyme og ovotransferríni. Með örverueyðandi og bólgueyðandi áhrifum styður Immun við heilbrigðar varnir líkamans, ver þig gegn sýkingum og eykur almenna
vellíðan.

Lagerstaða: Á lager

- +

Færðu reglulega kvef eða einhverja umgangspest eða ertu með langvinnar bólgur? Rannsóknir sýna að heilbrigður meltingarvegur er grunnur að öflugu ónæmiskerfi sem verndar líkamann gegn veikindum.

Immun 1.1 er háþróað bætiefni úr hágæða náttúrulegum hráefnum sem að græðir meltingarveginn og styrkir ónæmiskerfið. Immun inniheldur einstaka sérhannaða blöndu af gerjaðri íslenskri broddmjólk, lysozyme og ovótransferríni.

Immun inniheldur einnig næringarefni eins og sínk, A-vítamín og bíótín sem vernda líkamann, græða meltingarveginn og styrkja ónæmiskerfið. Með öflugum innihaldsefnum eins og hjálpar Immun þér að vera við góða heilsu og verja þig gegn sýkingum.

  • Eflir ónæmiskerfið: Inniheldur gerjaða íslenska broddmjólk ásamt viðbættu lysozyme og ovótransferríni sem vinna sérstaklega gegn sýkingum og bólgum.
  • Græðandi áhrif: Broddmjólkin græðir og byggir upp heilbrigðan meltingarveg.
  • Öflug vítamín og steinefni: Sínk eflir ónæmiskerfið, A-vítamín og bíótíni viðhalda heilbrigri slímhúð í öndunarfærum, meltingarvegi og þvagfærum.
  • Náttúruleg hráefni: Framleitt úr hágæða náttúrulegum hráefnum án allra aukaefna.
  • Öflug vörn: Má nota daglega en sérstaklega mikilvægt á álagstímum eða til að verjast umgangspestum.
  • Rannsóknir á hráefni, þ.e. broddmjólk hafa verið framkvæmdar á MIBRC rannsóknarsetri við MassGeneral Hospital, Harvard Medical School.Klínísk íhlutunarrannsókn fer nú fram á einstaklingum á aldrinum 50-70 ára þar sem þátttakendur taka inn gerjaða broddmjólk eða fæðubótarefnið Abdom. Þar eru áhrif efnanna á þarmaflóru, gegndræpi þarma, bólguþætti og fleiri heilsufarsþætti skoðuð. Rannsóknin er hluti af SYMBIOSIS öndvegisrannsókn við Háskóla Íslands.
Gerjuð íslensk broddmjólk:
  • Rík af ónæmisstyrkjandi efnum og næringarefnum sem styðja við ónæmiskerfið.
Góðgerlar:
  • Styðja við heilbrigða þarmaflóru og meltingarstarfsemi.
Lysozyme:
  • Hefur örverueyðandi eiginleika og hjálpar til við að vernda gegn sýkingum.
Ovótransferrín:
  • Járnbindandi prótein sem hefur sýklahemjandi og bólgueyðandi virkni.
Sink sítrat (Zink):
  • Nauðsynlegt fyrir ónæmisstarfsemi og bólgustjórnun.
Retinýl pálmitat (A-vítamín):
  • Styður við ónæmiskerfið og húðheilsu.
Bíótín (B7-vítamín):
  • Nauðsynlegt fyrir efnaskipti og stuðlar að heilbrigðri húð, hári og nöglum.
Til að fá sem mest út úr Immun og hámarka virkni þess er mikilvægt að taka það rétt. Daglega
  • Taktu Immun daglega, jafnvel þótt þú finnir ekki fyrir lasleika né álagi. Þannig getur þú byggt upp varnir ónæmiskerfisins og viðhaldið stöðugri verkun Immun.
Taktu inn með mat
  • Immun inniheldur fituleysanlegt A-vítamín (retínýl pálmitat) sem best er að taka inn með máltíð sem inniheldur smá fitu. Þetta hjálpar líkamanum að nýta vítamínið betur.
  • Tryggir einnig betri upptöku næringarefna eins og á sínki og bíótíni.
Morgun, síðdegi, kvöld
  • Það er mikilvægt að taka Immun inn þrisvar sinnum á dag á sama tíma, daglega, til að viðhalda stöðugri virkni
Drekktu vatn með
  • Drekktu glas af vatni þegar þú tekur bætiefnið þar sem það hjálpar til við frásog og nýtingu efna. Það er mikilvægt að fylgja ráðlögðum dagskammti fyrir hámarksárangur.
Vörukarfa